Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2003 5,8 milljónir bíla á fyrstu fimm árunum

5,8 milljónir bíla á fyrstu fimm árunum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Alls fóru rúmlega 1,3 milljónir bíla um Hvalfjarðargöng á liðnu rekstrarári, 1. október 2002-30. september 2003, sem er aukning um 3,6% frá fyrra ári.

Fyrstu fimm árin sem göngin voru opin, frá júlí 1998 til júlí 2003, fóru um þau 5,8 milljón bílar eða tæplega 3.200 bílar á sólarhring.

Mesta umferðin um göngin er jafnan á föstudögum um verslunarmannahelgar og svo var einnig á liðnu rekstrarári, þ.e. ferðir sem greitt var fyrir. Þá var umferðin 7.948 bílar en á afmælisdaginn, 11. júlí 2003, fóru hins 11.827 bílar ókeypis um göngin í boði Spalar, sem er umferðarmet frá því þau voru opnuð.


Frá vinstri: Matthea Sturlaugsdóttir, fulltrúi í Sementsverksmiðjunni og ritari aðalfundar Spalar og eiginmaður hennar, Benedikt Jónmundsson, Halla Gunnlaugsdóttir og eiginmaður hennar, Guðlaugur Hjörleifsson, fyrrverandi verkefnisstjóri Spalar á framkvæmdatíma Hvalfjarðarganga.

Frá vinstri: Gunnar Gunnarsson, stjórnarmaður Spalar, Ólafur Þór Jóhannsson, endurskoðandi Spalar, Gunnar Sigurðsson, endurskoðandi Spalar, Stefán Ólafsson, prófessor og fráfarandi stjórnarmaður Spalar og Helgi Þorsteinsson, stjórnarmaður Spalar.