Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2003 Áfallalaus umferð, öryggismálin í fyrirrúmi

Áfallalaus umferð, öryggismálin í fyrirrúmi

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Umferð í Hvalfjarðargöngum gekk áfallalaust fyrir sig á liðnu rekstrarrári. Einu skiptin sem þeim var lokað var í fimm nætur í maí, nokkrar klukkustundir í hvert skipti. Þetta var vegna árlegrar vorhreingerningar.
Sem fyrr lét stjórn Spalar sig öryggismál ganganna miklu varða í starfi sínu á rekstarárinu. Gísli Gíslason, stjórnarformaður, vék sérstaklega að þessu í skýrslu sinni á aðalfundinum á Akranesi í dag.
  • Spölur keypti Tetra-fjarskiptakerfi fyrir 25 milljónir króna og færði slökkviliði Akraness að gjöf 2 handstöðvar í Tetrakerfinu. Þar með uppfylla göngin strangari staðla en gerðir eru í Noregi um jarðgöng.
  • Áfram var unnið að endurskoðun viðbragðsáætlunar fyrir göngin og það verkefni er mjög langt komið. Þar hefur tekist mjög gott samstarf starfsmanna og stjórnenda Spalar, Vegagerðarinnar, Brunamálastofnunar, Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og slökkviliða Akraness og höfuðborgarsvæðis.
  • Efnt var til afar vel heppnaðra fjarskipa- og brunaæfinga í göngunum í tengslum við endurskoðun viðbragðsáætlunar og fyrirhugað að halda reglubundnar æfingar í framtíðinni til að búa alla sem að málum koma undir að bregðast skjótt og vel við ef hættuástand skapast.
Ennfremur nefndi Gísli að lögreglustjórinn í Reykjavík hefði á rekstrarárinu gefið út nýja og herta reglugerð um flutning hættulegra efna um Hvalfjarðargöng. Reglugerðin er byggð á skýrslu starfshóps sem dómsmálaráðherra skipaði til að fjalla um málið.

Frá vinstri: Bragi Ingólfsson, efnafræðingur í Sementsverksmiðjunni, Helgi Þorsteinsson, stjórnarmaður Spalar og Stefán Ólafsson, sem var í stjórn Spalar fram að aðalfundinum sem fulltrúi Íslenska járnblendifélagsins.



Frá vinstri: Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Sementsverksmiðjunnar og stjórnarmaður Spalar, Gunnar Sigurðsson, endurskoðandi Spalar og dr. Guðmundur Guðmundsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sementsverksmiðjunnar.