Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2003 Slökkvilið Akraness fékk Tetra-stöðvar að gjöf

Slökkvilið Akraness fékk Tetra-stöðvar að gjöf

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Slökkvilið Akraness fékk Tetra-stöðvar að gjöfSlökkvilið Akraness fór ekki tómhent úr afmælissamkomu Spalar við Hvalfjarðargöng í morgun. Stjórnarformaðurinn, Gísli Gíslason, afhenti Jóhannesi Karli Engilsbertssyni, slökkviliðsstjóra Skagamanna, tvær Tetra-handstöðvar að gjöf. Þar með er slökkviliðið tæknilega fullfært um að taka þátt í samskiptum í nýja Tetra-fjarskiptakerfinu sem samgönguráðherra tók formlega í notkun. Jóhannes Karl þakkaði höfðinglega gjöf en tók fram að hann vonaðist innilega eftir því að þurfa aldrei að nota talstöðvarnar fínu niðri í göngunum!