Alls fóru um 3.000 bílar um Hvalfjarðargöng frá kl. 9 til 14 í dag en á sama tíma sl. föstudag fóru 1.300 bílar um göngin. Umferðin er því rúmlega tvöfalt meiri í dag en fyrir viku og sýnir að margir notfæra sér afmælisgjöf Spalar til þjóðarinnar: ókeypis undir fjörðinn í sólarhring.Umferðin í göngunum hefur aukist verulega upp úr hádeginu og stefnir í að verða mikil og þung síðdegis. Lögreglan í Borgarnesi og á höfuðborgarsvæðinu fylgist með að allt gangi vel fyrir sig.
Umferðarmet í göngnunum er 11.800 bílar á sólarhring, sett daginn sem þau voru opnuð 11. júlí 1998. Þá var ekkert veggjald innheimt líkt og í dag. Sl. föstudag, 4. júlí, fóru 8.700 bílar um göngin.



