Tetra-kerfið, sem Spölur tók í dag í notkun í Hvalfjarðargöngum, er öryggis-, atvinnu- og neyðarfjarskiptakerfi sem lögregla, slökkvilið og sjúkralið á höfuðborgarsvæðinu hefur notað undanfarin ár en einnig nokkrar ríkisstofnanir, borgarstofnanir, verktakafyrirtæki og fyrirtæki í ferða- og flutningaþjónustu. Hópar lögreglu, slökkviliðs og björgunarsveita geta til dæmis verið í beinu, þráðlausu sambandi við alla þá sem þörf krefur í einu. Þannig geta 100 slökkviliðs- og björgunarmenn talað saman í einu í Tetra-kerfinu, hvort heldur er vegna stórbruna í Reykjavík, stórslyss eða hamfara. Breytir þá engu þótt álag sé svo mikið í símakerfum GSM og NMT að ekkert samband náist þar.Hugmyndafræði Íslendinga varðandi uppbyggingu Tetra vekur athygli víða í Evrópu vegna þess að hér var ákveðið að hafa það aðgengilegt öllum sem vildu hafa aðgang að öryggis- og neyðarfjarskiptakerfinu. Það er nær óþekkt erlendis að lögregla, slökkvilið og sjúkralið, varnarlið, orkufyrirtæki, vegagerð og fleiri deili með sér rekstri á borði við Tetra og feli hann sjálfstæðu félagi.



