Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2003 Mikilvæg reynsla fékkst á fjarskiptaæfingu í göngunum

Mikilvæg reynsla fékkst á fjarskiptaæfingu í göngunum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Æfingin þótti takast afar vel og skilaði því að skýrari mynd fékkst af styrkleika og veikleika í fjarskiptamálum í og við göngin. Lögreglan í Reykjavík, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, slökkvilið höfuðborgarsvæðis og Akraness, Neyðarlínan og Spölur stóðu sameiginlega að æfingunni, sem í raun var liður í því að búa til nýja viðbúnaðaráætlun fyrir Hvalfjarðargöng.

Fyrirfram hafði verið ákveðið að endurkalla útkall frá því að kvöldi 6. mars þegar spíss í vél flutningabíl gaf sig með þeim afleiðingum að göngin fylltust af reyk. Markmið æfingarinnar var að kanna fjarskipti við alla sem málið varðar og fara yfir ferlið (samskipti í Tetra, samskipti á VHF, samskipti milli fjarskiptakerfanna, prófa VHF-stöðvar í skáp sunnan ganga osfrv.

Hafþór Jónsson var í aðsetri Almannavarna í Reykjavík, stjórnaði æfingunni og fylgdist með fjarskiptunum. Hann telur vel hafa tekist til í grundvallaratriðum. Almannavarnir fengu tilkynningu frá Neyðarlínunni 8 mínútum eftir að útkall barst úr gjaldskýli.

Vitað var að í göngunum væru „dauðir fjarskiptablettir“ og fékkst það staðfest á æfingunni. Fulltrúar slökkviliðanna og lögreglunnar í Reykjavík greindu frá því að samband hefði verið gloppótt í VHF-kerfinu sunnan ganga og allt að 200 metra frá munnanum. Sambandið inni í göngunum að sunnanverðu var hins vegar gott en þá var ekki sama hvoru megin menn stóðu með talstöðvarnar. Sambandið var gott vinstra megin en lítið sem ekkert hægra megin efst í göngunum að sunnan. Slökkvilið Akraness komst líka að því að dauðir blettir eru í VHF-kerfinu við nyrðri enda ganganna og í útskotum.

Í heildina tekið komu fram ýmsir þekktir agnúar á fjarskiptunum en áður óþekktir agnúar bættust vissulega við. Hins vegar eru þessir agnúar þess eðlis að yfirgnæfandi líkur eru á að Tetra-fjarskiptakerfið, sem Spölur hefur keypt til að setja upp í göngunum, sníði þá af og fjarskiptin verði eftir það hnökralítil eða (vonandi) hnökralaus.

Lögreglumenn fylgjast með fjarskiptum á æfingunni.

Þátttakendur báru saman bækur sínar að æfingu lokinni en fljótlega verður boðað til sérstaks fundar til að fara ítarlega yfir reynslu og lærdóma.