Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2004 Gylfi leystur út með listagrip

Gylfi leystur út með listagrip

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Stjórn Spalar þakkaði Gylfa Þórðarsyni, framkvæmdastjóra Sementsverksmiðjunnar, fyrir mikilvægt framlag hans og vel unnin störf í þágu félagsins og Hvalfjarðarganga á stjórnarfundi fyrir helgina.

Gylfi hætti í stjórn Spalar á aðalfundi 16. nóvember síðastliðinn eftir að hafa verið í forystusveit félagsins frá því það var stofnað í janúar 1991 og einn af helstu driffjöðrum að undirbúningi málsins árin þar á undan. Gísli færði Gylfa gjöf af þessu tilefni, listmun í anda Hvalfjarðarganga eftir Dýrfinnu Torfadóttur, gullsmið á Akranesi.

Gísli og Gylfi með gripinn góða.