Vegagerðin kannaði málið norðan Hvalfjarðarganga fimmtudaginn 24. október og laugardaginn 26. október 2002 frá klukkan 7 að morgni til miðnættis báða dagana. Allir bílar sem fóru um göngin voru stöðvaðir og spurningar lagðar fyrir bílstjórana. Tilgangurinn var að afla upplýsinga um hvert leiðin lægi, hvar menn ættu heima og í hvaða erindum þeir færu um göngin. Könnunin er svo hluti stærra verkefnis sem varðar áhrif Hvalfjarðarganga á búsetuþróun á Vesturlandi.
Niðurstöðurnar hafa nú verið birtar á heimasíðu Vegagerðarinnar. Þar kemur fram að alls fóru yfir 5.800 bílar um göngin dagana sem könnuðirnir voru að störfum og svarhlutfallið var hvorki meira né minna en 99,7%, þ.e. tveir stoppuðu ekki og þrettán bílstjórar neituðu að svara!
Ýmislegt fróðlegt er að finna í skýrslunni um könnunina (meðaltal í viku).
- Búseta ökumanna: rúmlega 40% búa á höfuðborgarsvæðinu, rúmlega 40% á Vesturlandi, 10% á Norðurlandi og hinir í öðrum landshlutum.
- Tilgangur ferðar: 50% í einkaerindum, 40% vegna atvinnu.
- Tíðni ferða um göngin: 29% daglega, 26% vikulega, 25% mánaðarlega.



