Hátt í fjórir tugir manna sóttu kynningarfundinn í Reykjavík. Þarna voru fulltrúar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, lögreglunnar í Reykjavík, ríkislögreglustjóra, fjarskiptamiðstöðvar lögreglunnar, almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, Brunamálastofnunar, Vegagerðarinnar, Rauða krossins, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Spalar. Hafþór Jónsson, deildarstjóri almannavarnadeildar, kynnti fyrirliggjandi drög að viðbragðsáætlun, Atli Rúnar Halldórsson, ráðgjafi frá Athygli ehf. og ritari vinnuhóps um viðbragðsáætlun, stjórnaði fundinum fyrir hönd Spalar.
Samkoman tókst vel og gagnlegar ábendingar bárust frá fundarmönnum sem hafðar verða til hliðsjónar þegar áætlunin verður fínpússuð í vor. Gert er ráð fyrir að hún taki gildi í síðasta lagi 1. maí og leysi þá af hólmi viðbragðsáætlun frá því göngin voru opnuð, í júlí 1998.Vinna við endurskoðun viðbragðsáætlunar ganganna hófst í ársbyrjun 2002 og hefur staðið með hléum í rúmlega tvö ár. Sjálft verkefnið reyndist vera öllu umfangsmeira og tímafrekara en áætlað var í upphafi og enn má búast við einhverjum breytingum í takt við nýja boðunaráætlun sem starfsmenn Neyðarlínunnar og almannavarnadeildar vinna að í sameiningu.





