Nokkur brögð eru að því að menn aki um gjaldhliðið á ytri akreinum án þess að hafa veglykla í bílunum; stelist með öðrum orðum í gegn án þess að greiða tilskilið veggjald. Spalarstjórn ákvað að bregðast við með því að samþykkja þá breytingu á gjaldskrá Hvalfjarðarganga að innheimt skuli sérstakt 3.000 álag á veggjald fyrir staka ferð hjá þeim sem brjóta af sér á þennan hátt. Gjaldskrárbreytingin tekur gildi nú á nýársdag.
Veggjald fyrir staka ferð fjölskyldubíls er 1.000 krónur og því þurfa eigendur slíks bíls að greiða alls 4.000 krónur fyrir að stelast í gegn án þess að borga (1.000+3000 kr.). Í gjaldflokki II er hliðstætt gjald með álagi alls 6.000 krónur (3.000+3000 kr.) og í gjaldflokki III er veggjald að viðbættu álagi 6.800 krónur (3.800+3.000 kr.).
Þar með er öll sagan ekki sögð því þeir sem stelast án veglykils í gegnum gjaldhliðið aka gegn rauðu ljósi og slíkt háttarlag telst nákvæmlega jafnalvarlegt umferðarlagabrot og að fara yfir á rauðu ljósi á gatnamótum og gangbrautum hvar sem er annars staðar í gatnakerfi landsins. Brotamenn af þessu tagi mega þannig búast við að fá 15.000 króna sekt og fjóra refsipunkta í ökuferilsskrána sína, auk veggjalds og 3.000 króna álags Spalar!
Eigandi fjölskyldubíls þarf með öðrum orðum að punga út með alls 19.000 krónur fyrir eina ferð í heimildarleysi. Fyrir þá upphæð gæti viðkomandi farið 70 sinnum um göngin ef hann er áskrifandi að 100 ferðum en 49 sinnum ef hann er áskrifandi að 40 ferðum!
- Ætli sé nú ekki gáfulegra að gerast einfaldlega áskrifandi að þessum vildarkjörum Spalar þegar í stað frekar en stofna til heimskulegra aukaútgjalda með með því að kalla yfir sig stórfelld útgjöld og vandræði: álag, sekt og refsistig í kladdann - fyrir að spara sér heilar 270 krónur (sem áskrifendur 100 ferða greiða í hvert skipti sem þeir aka um Hvalfjarðargöng)?



