Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2005 Sofnaði undir stýri og ók á gangavegginn

Sofnaði undir stýri og ók á gangavegginn

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Fólksbíl var ekið utan í vegg Hvalfjarðarganga snemma að morgni laugardags 5. nóvember. Bílstjórinn var einn á ferð og sofnaði undir stýri með þessum afleiðingum. Hann sakaði ekki en bíllinn er mikið skemmdur og tjónið í göngunum er með því mesta sem um getur frá því þau voru opnuð fyrir umferð sumarið 1998.

Óhappið átti sér stað um sexleytið að morgni í brekkunni að að norðanverðu. Bíllinn var á norðurleið, um miðja vegu milli Guðlaugar í botninum og gangamunnans. Hann fór yfir á rangan vegarhelming og skemmdi klæðninguna í göngunum á allt yfir 20 metra kafla hinum megin áður en hann stöðvaðist.

Ljóst er að viðgerð á klæðningunni tekur langan tíma. Skemmdirnar á henni má glögglega sjá á meðfylgjandi myndum.

Sofandi undir stýri og ók á gangavegginn