Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2005 Stolnum vörubíl ekið utan í göngin

Stolnum vörubíl ekið utan í göngin

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Stolnum vörubíl ekið utan í gönginUngur maður á stolnum vörubíl ók utan í vegg Hvalfjarðarganga á níunda tímanum í gærkvöld og hlaut af minni háttar meiðsl. Bílnum hafði hann stolið á bæ í Hvalfirði, sunnan ganga, ekið norður göngin, snúið við á milli norðurmunna og gjaldskýlis og haldið til baka suður göngin. Ökuferðin endaði með því að bíllinn fór yfir á rangan vegarhelming og skall þar á veggnum.

Ökumaðurinn reyndist vera úr svokölluðum góðkunningjahópi lögreglunnar og var á skilorði. Hann var undir annarlegum áhrifum og kvaðst hafa ætlað norður í land. Ástandið á manninum var hins vegar þannig að hann vissi mest lítið í sinn haus og mátti þakka fyrir að aðrir vegfarendur hafi sloppið við að vera fyrir honum í ökuferðinni.

Göngin voru lokuð í um 45 mínútur frá því vegfarandi lét vita af óhappinu þar til hreinsað hafði verið til á vettvangi.

 

Stolnum vörubíl ekið utan í göngin