Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2005 Með iðrin úti!

Með iðrin úti!

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Margur kappinn í Íslendingasögunum var sjaldan sprækari en eftir að óvinurinn hafði rist hann á kvið á vígvellinum. Hjó þá sá kviðristi gjarnan á báða bóga með iðrin úti og lét hvergi bugast. Drengurinn á myndinni lætur sér líka fátt um finnast þó iður hafi komist út undir bert loft. Enda er allt í plati. Hann var einn úr hópi leikenda í hlutverkum slasaðra í almannavarnaæfingunni í Hvalfjarðargöngum á dögunum. Þessir leikarar voru af Skaganum og úr Lögregluskóla ríkisins. Þeir stóðu sig svo vel að Vigdís, ábyrgðarmaður þessa hluta æfingarinnar, sagðist aldrei hafa hafa kynnst öðru eins. Hefur hún þó marga fjöruna sopið og séð um að farða og æfa ,,slasaða" á ótal æfingum víða um land.

Hún Anna Filbert í björgunarsveitinni Kili sendi okkur meðfylgjandi myndir og hafi hún heila þökk fyrir. Jafnframt eru efni til þess hér og nú að senda Kjalarmönnum öllum og öðrum björgunarsveitarmönnum bestu kveðjur og þakkir fyrir framlag þeirra á æfingunni.

Vettvangur förðunar á Kjalarnesi. Bætt við blóði í sá á handlegg.
Illt í efni og iðrin úti. Brenndur á baki.
Skrámaður á öxl og hálsi. Illa farinn á báðum fótleggjum.
 
Blóðefni roðið á hendur leikara.  
Á biðsvæði sunnan Hvalfjarðar. Í þyrlu Gæslunnar á leið norður fyrir fjörð.
Hópur „slasaðra“ að förðun lokinni, tilbúinn að taka þátt í æfingunni.