Sumir tóku í fyrsta sinn þátt í almannavarnaæfingu, aðrir höfðu komið nálægt slíku áður og enn aðrir voru greinilega gamlir refir með þekkingu og reynslu í ríkum mæli sem þeir gátu miðlað af. Fulltrúar einstakra verkþátta æfingarinnar fjölluðu um sína reynslu en í lokin komu fram sjónarmið nokkurra ,,ósýnilegra" þátttakenda sem höfðu það hlutverk að fylgjast með, beinlínis til að taka atburðarásina og frammistöðu björgunarliðs fyrir á gagnrýninn hátt. Umræðurnar á fundinum voru líflegar og uppbyggilegar og öruggt mál að tímabært var að stilla saman strengi þeirra fjölmörgu sem að slíkum atburðum kæmu.
Þátttakendur voru höfðu margir hverjir skrifað hjá sér minnispunkta um æfinguna og aðrir eiga eftir að stinga niður penna. Minnispunktana má senda til fulltrúa almannavarna ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ) eða Spalar ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ), sem sjá um að koma út skýrslu um almannavarnaæfinguna Hvalfjarðargöng 2005.
Spölur þakkar öllum sem þátt tóku í æfingunni innilega fyrir framlagið og samstarfið, einkum eiga leikarar í hlutverkum slasaðra miklar þakkir skildar fyrir einstaklega góða frammistöðu. Um þá féllu mörg hlý orð á rýnifundinum og það áttu krakkarnir svo sannarlega skilið.
| ![]() |
![]() | ![]() |
![]() | ![]() |
![]() | ![]() |
![]() | ![]() |
![]() | ![]() |
![]() |















