Ný gjaldskrá Spalar ehf. fyrir umferð í Hvalfjarðargöngum tók gildi í dag, 1. apríl. Veggjald fastra viðskiptavina (áskrifenda) í öllum gjaldflokkum lækkar og sömuleiðis lækkar verð á 10 ferða afsláttarkortum. Gjald fyrir stakar ferðir breytist ekki.Markmið gjaldskrárbreytinganna er að láta þá viðskiptavini njóta mestrar lækkunar sem oftast aka um göngin á venjulegum heimilisbílum. Veggjald áskriftarferða fyrir stærri bíla í efri gjaldflokkum lækkar einnig en mun minna.
- Verð 100 áskriftarferða fjölskyldubíla lækkar langmest eða um 38%. Þessir viðskiptavinir aka nú um göngin fyrir 270 krónur í stað 440 króna áður.
- Verð 40 áskriftarferða fjölskyldubíla lækkar um 29%. Þessir viðskiptavinir aka nú um göngin fyrir 390 krónur í stað 550 króna áður.
- Notendur afsláttarkorta borga nú 600 krónur fyrir hverja ferð í stað 700 króna áður; lækkun um 14%.
- Lækkun veggjaldsins skilar sér að sjálfsögðu til viðskiptavina sem eiga inni á reikningum sínum hjá Speli. Ónotuðum ferðum þeirra fjölgar sjálfkrafa í dag í samræmi við inneignina.
- Áskrifendur ferða um Hvalfjarðargöng geta innan tíðar fengið upplýsingar um stöðu viðskiptareiknings síns á heimasíðu Spalar, spolur.is. Þeir sjá hve margar ferðir hafa verið notaðar af ,,kvótanum? hverju sinni og hve margar ferðir eru eftir.



