Enn og aftur var flutningabíl ekið á stálbitann ofan við suðurmunna Hvalfjarðarganga og bílstjórinn kaus að halda áfram ferð sinni án þess að nema staðar eða tilkynna um atvikið. Þetta er sjöunda tilvikið af þessu tagi frá því milli jóla og nýárs.
Flutningabíllinn umræddi var á norðurleið með gám á palli í gærkvöld og var ekið á umtalsverðum hraða inn í Hvalfjarðargöng að sunnan. Gámurinn rakst upp í öryggisbitann yfir gangamunnanum með þeim afleiðingum að stálbolti, sem heldur bitanum föstum, fór í sundur og bitinn færðist úr sæti sínu. Greinilegt far sást á bitanum eftir höggið og útilokað er að bílstjórinn hafi ekki orðið atviksins var. Hann hélt hins vegar óhikað áfram för sinni í gegnum göngin þar til starfsmaður í gjaldskýli mætti honum inni í göngunum að norðan - áður en hann kom að öryggisbitanum þeim megin.
Lögleg hámarkshæð farms eða bíls hérlendis er 4,20 metrar en hæðin á bílnum umrædda reyndist vera 4,53 metrar! Lögreglan úr Mosfellsbæ kom á vettvang og tók skýrslu af bílstjóranum.



