Ekið hefur verið af og til á öryggisbitana frá því þeir voru settir upp í apríl 2001. Í vetur hefur hins vegar keyrt um þverbak og frá því milli jóla og nýárs eru skráð sex alvarleg atvik af þessu tagi. Tjón Spalar og tryggingafélaganna skiptir tugum milljóna króna frá upphafi en engin slys hafa orðið á fólki þó legið hafi þar nærri í nokkur skipti. Flutningabílstjórarnir setja sig sjálfa og aðra vegfarendur í stórfellda hættu með vítaverðu hátterni sínu. Skemmdir hafa líka orðið á farminum sem rekst í stálbitana, í sumum tilvikum verulegar.
![]() |
| Bitafesting dinglar í öryggiskeðju 11. febr. |
Nærtækt er að nefna dæmi frá 11. febrúar 2005 þegar gámur á flutningabíl hreinsaði af veggnum aðra festingu öryggisbitans yfir suðurmunna. Bílstjórinn hélt samt áfram för sinni án þess að staðnæmast. Sex 25 millimetra stálboltar kubbuðust í sundur, hver um sig á að þola 7-10 tonna átak! Bitafestingin, sem losnaði frá gangaveggnum, er um 60 kg að þyngd og hefði að sjálfsögðu fallið niður á akbrautina ef Spalarmenn hefðu ekki fest við hana öryggiskeðju fyrr í vetur. Fjöldi bíla var á eftir flutningabílnum þegar hann ók á öryggisbitann og allt eins er víst að festingin hefði flogið út á akbrautina við höggið með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Þakka ber keðjunni að svo fór ekki. Hins vegar urðu skemmdir á þaki flutningabíls sem á eftir kom þegar hann rakst upp í dinglandi festinguna í gangaloftinu. Aðeins var liðinn einn sólarhringur frá því þessi sami öryggisbiti var settur upp eftir hliðstæða ákeyrslu!
Flutningabíllinn umræddi var á suðurleið með gám og slapp undir öryggisbita í norðurmunna ef til vill með því bílstjórinn hleypti úr loftpúðum bílsins og lækkaði hann nægilega mikið. Bílnum var síðan ekið á fullri ferð á bitann yfir suðurmunna á leið til Reykjavíkur. Sjá má í öryggismyndavél ganganna að höggið var gríðarlegt og bíllinn hnykktist til. Samt hélt bílstjórinn áfram för sinni án þess að hægja ferðina, hvað þá nema staðar! Vaktmenn í gjaldskýli urðu atviksins varir og létu lögreglu strax vita. Hún hafði upp á bílstjóranum og tók af honum skýrslu. Hvað gerist svo er undir lögreglunni komið.
![]() |
| 6 boltar slitnuðu; þeir þola 7-10 tonna átak hver! |
Stálbitum í gangamunnunum er ætlað að vernda blásara og annan dýran búnað í lofti Hvalfjarðarganga. Þeir voru settir upp þegar ljóst var að veigaminni öryggisslár dugðu hvergi til að stöðva lögbrjóta með ólöglega háan farm. Mælirinn fylltist sumarið 2000 þegar bjartsýnismaður einn reyndi að flytja heilt sumarhús í gegnum göngin. Hæð farmsins var 4,60 metrar og ferðalagið endaði 1.400 metra inni í göngunum. Þá rakst mænir hússins rakst upp í blásara og annan búnað og allt sat fast, bæði farmur og bíll.
Undrun sætir að sumir bílstjórar skuli ítrekað leika sér að eldinum og flytja farm sem er miklu hærri en lög leyfa. Auðvitað er með öllu ábyrgðarlaust að storka örlögunum með því að aka á öryggisbúnað Hvalfjarðarganga og stofna þannig lífi og limum annarra vegfarenda í stórfellda hættu.
Spölur hefur af gefnu tilefni vakið athygli lögreglunnar á alvöru málsins enda ætlast félagið til þess að lög um hámarkshæð farms séu virt í Hvalfjarðargöngum engu síður en lög um hámarkshraða.
|
| Boginn biti eftir árekstur við gröfu á bílpalli 22. febrúar. |
![]() |
| Festingin brotin og allt dinglandi í keðjum yfir akbrautinni 11. febrúar. |






