Vegfarendur sem fara oft um Hvalfjarðargöng komust ekki hjá því að taka eftir breytingunni sem varð þar á dögunum þegar lýsing var tvöfölduð yfir akbrautum til beggja enda. Þessi ráðstöfun eykur enn á öryggi í umferðinni og mælist vel fyrir.Loftljósum var fjölgað 250 metra inn í göngin frá hvorum munna. Við þetta tvöfaldaðist lýsingin og þar með er minni munur á dagsbirtunni annars vegar og birtunni inni í göngunum hins vegar. Þetta er til mikilla bóta og svarar kalli frá viðskiptavinum Spalar, einkum í hópi eldra fólks, sem óskuðu eftir meira ljósi við munnana til að venjast fyrr birtubreytingunni þegar ekið væri inn í göngin.
Stjórn Spalar fjallaði um málið í sumar og ákvað að bregðast við með því að auka lýsinguna.



