Ökumaður á norðurleið fór utan í vegg í Hvalfjarðargöngum aðfararnótt laugardagsins 30. september og stórkemmdi dúkinn á allt að 15 metra löngum kafla. Bíllinn skemmdist verulega líka en maðurinn lét sig samt hafa það að hverfa af vettvangi án þess að tilkynna um atvikið. Hann var einn á ferð og meiddist ekki. Síðdegis á laugardag ákvað þessi vegfarandi að gefa sig fram og lögregla tók hann í morgun tali í tilefni þessa.



