
Hestakerra fór á hliðina að sunnanverðu í göngunum upp úr miðnætti í nótt. Enginn meiddist en eignatjón er umtalsvert.
Kerran var aftan í bíl sem var á suðurleið þegar óhappið átti sér stað. Öku
Kerran var aftan í bíl sem var á suðurleið þegar óhappið átti sér stað. Öku
maður var einn á ferð og engin hross í kerrunni, sem slóst utan í gangaveggi beggja vegna akbrautar áður en hún skall á hliðina og þegar hún staðnæmdist vísaði dráttarbeislið norðurs. Mikið lán var að umferð var lítil í göngunum því öðrum bílum hefði augljóslega verið hætta búin ef þá hefði borið að á þessu augnabliki.
Göngin voru lokuð í um hálfa aðra klukkstund. Dúkurinn í göngunum skemmdist talsvert beggja vegna.



