Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2006 Skar í sundur vegbrú í Kansas

Skar í sundur vegbrú í Kansas

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Linnulitlar fréttir undanfarna daga, af ábyrgðarlausum akstri flutningabílstjóra með alltof háan farm í Hvalfjaðargöngum, urðu vildarvini Spalarsíðunnar efni til að gauka að henni meðfylgjandi myndum frá Bandaríkjunum. Þær sýna afleiðingar glæfraaksturs með alltof háan farm í febrúar síðastliðnum.

Atvikið átti sér stað nálægt Hays í Kansas. Flutningabíl með gröfu á vagni var ekið á miklum hraða á brú yfir ríkisveg 70. Bóma gröfunnar skar brúna næstum því í sundur, svo ótrúlegt sem það kann að hljóma,. Slys urðu ekki á fólki. Ekki þarf hins vegar sérlega líflegt ímyndunarafl til að sjá fyrir sér mögulegar afleiðingar þessa skelfilega aksturs fyrir aðra vegfarendur, hvort heldur sem þeir áttu leið um ríkisveg 70 eða sjálfa brúna.

Svo er næsta víst er að viðurlög í bandarísku réttarkerfi eru öllu harkalegri fyrir brot af þessu tagi en í því íslenska!
 
Skar í sundur vegbrú í Kansas
 
Skar í sundur vegbrú í Kansas

 

 

Skar í sundur vegbrú í Kansas