Ökumaður á leið norður sofnaði undir stýri í gær, miðvikudag, og ók utan í vegginn sunnarlega í göngunum. Hann var einn á ferð og slasaðist ekki en bíllinn er verulega skemmdur og var dreginn á brott með kranabíl. Dúkurinn á gangaveggnum skemmdist líka á kafla. Bíllinn fór yfir á öfugan vegarhelming og skall þar á veggnum.
Bílstjóranum og öðrum vegfarendum til láns kom enginn úr gagnstæðri átt á þessu augnabliki, annars hefði verr farið.



