Eldri hjón meiddust minniháttar á laugardagsmorguninn, 20. maí, þegar bíll þeirra lenti harkalega utan í vegg ganganna. Þau voru flutt á slysadeild í Reykjavík. Bíllinn er gjörónýtur.Óhappið átti sér stað á tíunda tímanum. Bíllinn var á norðurleið þegar ökumaður missti stjórn á honum með þessum afleiðingum. Nokkur umferð var í Hvalfjarðargöngum þegar þetta gerðist en sem betur fór var enginn nálægt þegar bíllinn umræddi skall utan í og snerist á akbrautinni.
Neyðarlínan fékk boð frá öðrum vegfarendum og svo vildi til að einmitt um þetta leyti var að hefjast æfing hjá slökkviliðinu á Kjalarnesi. Skammur tími leið því frá útkalli þar til dreif að lögreglu, slökkvi- og sjúkraflutningalið og björgunarsveitarmenn sem hugðust taka þátt í æfingunni. Aðkoman var slæm og klippa þurfti farþegann lausan úr bílflakinu. Sem betur fór reyndust meiðsli beggja í bílnum minni en ætlað var í fyrstu.
Hvalfjarðargöngum var lokað strax eftir slysið. Þau voru opnuð á nýjan leik tæplega tveimur klukkustundum síðar.



