Hvalfjarðargöngum verður lokað kl. 1 í nótt, aðfararnótt fimmtudags 27. apríl, og gert er ráð fyrir að þau verði lokuð í þrjár klukkustundir, þ.e. til kl. 4 eða jafnvel lengur. Ástæða lokunar er sú að RARIK tekur rafmagn af göngunum.
RARIK skiptir um spenna í dreifikerfi sínu í nótt og tekur af rafmagn á meðan bæði norðan og sunnan Hvalfjarðar. Ljóslaust verður þá í Hvalfjarðargöngum og öryggiskerfi ganganna virkar ekki. Stjórnendur Spalar ákváðu því að loka fyrir umferð á meðan ástandið varir.
Lögregla varður á vakt við gatnamót beggja vegna Hvalfjarðar á meðan lokað er og vakt verður í gjaldskýlinu eins og venjulega.



