Anna Lilja Hauksdóttir frá Húsavík fékk veglegri móttökur við gjaldskýli Hvalfjarðarganga um eittleytið í dag en hún gerði ráð fyrir. Hún ók tíu milljónasta bílnum um göngin frá því þau voru opnuð 11. júlí 1998 og var leyst út með gjöfum í tilefni þess.Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar, Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri, og Marínó Tryggvason, aðstoðarframkvæmdastjóri félagsins voru mættir í hádeginu í og fylgdust með umferðinni, sem var öllu stríðari til suðurs en norðurs. Sá tíu milljónasti reyndist koma út úr göngunum, Anna Lilja á leið frá Selfossi heim til Húsavíkur með börnin sín þrjú: Aron Geir, Birgi Þór og Sunnu Björk. Þegar hún hugðist borga veggjaldið í skýlinu var bíllinn umkringdur ráðamönnum Spalar og útsendurum Morgunblaðsins og Sjónvarpsins. Húsvíkingurinn þurfti að sjálfsögðu ekki að borga heldur var í staðinn beðinn um að stíga út úr bílnum og taka við glæsilegum skrautgrip sem hannaður er af Dýrfinnu Torfadóttur, gullsmið á Akranesi. Með fylgdi kvöldverðarboð á Hótel Holti, ávísun á ókeypis ferð um göngin í tíu skipti og veglegur blómvöndur með heiðurskossum á kinn frá stjórnarformanni og framkvæmdastjóra. Til hamingju með þetta, Anna Lilja!
Þess má til gamans geta að milljónasti bíllinn fór um göngin 17. júlí. Þar var á ferð Guðný Húnbogadóttir í Keflavík á ásamt börnum sínum á leið á Halló Akureyri um verslunarmannahelgina. Tvær landsbyggðarkonur með börn í bíl hafa því dottið í bæði skiptið í þennan lukkupott Spalar, sem á og rekur Hvalfjarðargöng.
Umferð í Hvalfjarðargöngum er margfalt meiri en ætlað í rekstraráætlunum sem stuðst var við áður en þau voru opnuð. Ef miðað er við hámarksumferð samkvæmt þessum áætlunum hefði tíu milljónisti bíllinn farið um göngin á árinu 2016 en það gerðist sem sagt heilum áratug fyrr, 23. apríl 2006!




