Lögreglan í Reykjavík skráði alls 224 hraðakstursbrot í Hvalfjarðargöngum frá fimmtudegi 12. apríl til þriðjudags 18. apríl. Alls fóru um 37.000 bílar um göngin um páska, það er að segja frá miðvikudegi til mánudags, 1.200 fleiri en á sama tíma í fyrra.
Mældur var hraði 6.368 bíla á suðurleið um göngin frá 12. apríl til laugardags 15. apríl. Af þeim 58 bílar of hratt, meðalhraði þeirra brotlegu var 88.6 km/klst. Þá var mældur hraði 6.693 bíla á norðurleið frá laugardegi 15. apríl til þriðjudags 18. apríl. Af þeim voru 166 ökumenn brotlegir og meðalhraði þeirra var 88,5 km/klst.
Umferð í Hvalfjarðargöngum gekk vel um páskana. Hún var dreifðari en í fyrra og engir hnútar mynduðust á mestu álagstímum.



