Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2006 111 ökumenn fóru of hratt í göngunum

111 ökumenn fóru of hratt í göngunum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Lögreglan í Reykjavík stóð alls 111 ökumenn að því að aka of greitt um Hvalfjarðargöng um síðastliðna helgi. Frá morgni föstudags 31. mars til mánudags 3. apríl fóru 7.993 bílar um göngin til norðurs og af því voru sem sagt 111 yfir hámarkshraða.

Meðalhraði þeirra brotlegu var tæplega 89 km á klukkustund en hámarkshraði í göngunum er 70 km á klst.

Í febrúar í ár mældi lögreglan hraða á sama stað, frá föstudegi 17. febrúar til mánudags 20. febrúar. Þá óku 7.087 bílar til norðurs undir Hvalfjörð, þar af voru 109 brotlegir og meðalhraði þeirra var tæplega 89 km á klst, nánast sá sami og mældist hjá hraðakstursmönnunum um síðustu helgi!