Þetta gerðist laust eftir klukkan eitt um nóttina og þá var umtalsverð umferð í göngunum en sem betur fer var enginn á ferð nálægt umræddum bíl þegar óhappið átti sér stað. Ökumaðurinn var á suðurleið og ók fyrst utan í klæðingu á gangaveggnum hægra megin en sveigði síðan þvert yfir akbrautina og skall á veggnum hinum megin.
Lögregla var kvödd á vettvang og farið var með ökumanninn niður á Akranes. Bíllinn verður ekki hreyfður meira og klæðingin er illa farin, eins og meðfylgjandi mynd sýnir. Það var svo framhald á þessari sögu í dag, mánudaginn 20. febrúar, þegar flutningabíll með háfermi náði að krækja í fráflakandi klæðinguna eftir viðskilnað ölvaða ökumannsins. Klæðingin rifnaði enn frekar og lafði út yfir akbrautina. Göngunum var lokað örskamma stund í dag á meðan klæðingin var lagfærð til bráðabirgða.





