Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2006 Gylfi ráðinn framkvæmdastjóri Spalar

Gylfi ráðinn framkvæmdastjóri Spalar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Gylfi Þórðarson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sementsverksmiðjunnar, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Spalar. Gengið var frá ráðningu hans á stjórnarfundi fyrir helgi.

Gylfi er gjörþekkir málefni Spalar frá upphafi. Hann var í hópi frumkvöðla sem barðist fyrir því á sínum tíma að gerð yrðu göng undir Hvalfjörð og var kjörinn formaður stjórnar Spalar á stofnfundi félagsins fyrir réttum 15 árum, í janúar 1991. Hann sat síðan óslitið í stjórn Spalar þar til í nóvember 2004.