Lögregla höfuðborgarsvæðisins fylgdist með umferð norður göngin í tvo sólarhringa, frá því á síðastliðnum þriðjudagsmorgni til kl 10:50 í dag, 13. desember. Alls voru 4.122 bílar á ferðinni á þessu tímabili og 57 þeirra fóru of greitt eða tæplega 1%. Einungis 5 bílum var ekið á 90 km hraða eða hraðar, þar af einum á 94 km hraða.
Þetta er enn ein staðfesting á að ökumenn hafa dregið úr hraðakstri og batnandi umferð er best að lifa.



