Alls reyndust 350 ökumenn aka hraðar í Hvalfjarðargöngum um nýliðna helgi en leyfilegt er. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 84 km/klst en leyfður hámarkshraði í göngunum er 70. Tuttugu og átta ökumenn óku á yfir 90 km hraða og tveir á yfir 100 en sá sem hraðast ók var á 103 km hraða. Þetta kemur frá á heimasíðu lögreglunnar.



