Um 10.000 bílar fóru um Hvalfjarðargöng síðastliðinn sunnudag, 12. ágúst, en um 8.500 á sunnudegi Fiskidagshelgarinnar 2006. Þetta er metumferð á einum degi það sem af er árinu 2007. Til samanburðar má nefna að mest fóru 8.800 bílar um göngin á einum degi um nýliðna verslunarmannahelgi.
Staumurinn á sunnudaginn lá aðallega að norðan þar sem voru knattspyrnumót á Sauðárkróki og Siglufirði, handverkshátíð í Eyjafirði og Fiskidagurinn mikli á Dalvík. Í heildina tekið var umferðin mun meiri um þessa helgi en um verslunarmannahelgina og líka mun meiri en um Fiskidagshelgina 2006.
Spalarmenn fóru yfir umferðartölur í morgun og niðurstaðan er eftirfarandi:
| Fiskidagshelgin 2007 (frá fimmtudegi til mánudags): | 40.000 bílar |
| Verslunarmannahelgin 2007 (frá fimmtudegi til mánudags): | 37.400 bílar |
| Fiskidagshelgin 2006 (frá fimmtudegi til mánudags): | 36.100 bílar |



