Umferð í Hvalfjarðargöngum var tæplega 18% meiri í maí ár en í sama mánuði í fyrra. Þá fóru um 156.000 bílar um göngin en 184.000 nú.
Alls fóru um 1.140.000 bílar um göngin fyrstu átta mánuði rekstrarárs Spalar, þ.e. frá og með október 2006 til og með maí 2007. Það er 9,8% aukning miðað við sama tímabil á fyrra rekstrarári.
Umferð hefur aukist sjö mánuði mánuði af átta það sem af er rekstrarárinu. Einungis í nóvember var örlitið minni umferð en í sama mánuði 2006 og skýringar á því er helst að leita í slæmu tíðarfari.



