Ný gjaldskrá fyrir Hvalfjarðargöng tekur gildi á mánudaginn kemur, 7. maí. Þar ber helst til tíðinda að gjaldflokkum fjölgar um einn. Kynntur er til sögu nýr gjaldflokkur fyrir ökutæki, 6-8 metrar að lengd (II. flokkur). Í gjaldskránni hafa frá upphafi verið þrír gjaldflokkar auk sérstaks flokks fyrir mótorhjól. Flest ökutæki eru í I. flokki (styttri en 6 metrar að lengd), í II. flokki eru ökutæki 6-12 metrar að lengd og í III. flokki ökutæki ökutæki lengri en 12 metrar.
Breytingin er í raun fólgin í því að skipta II. gjaldflokki í tvennt. Í nýjum II. flokki verða ökutæki 6-8 metrar að lengd og í nýjum III. flokki verða ökutæki 8-12 metrar að lengd.
Veggjald fyrir svokallaða pallbíla, sendibíla og fleiri ökutæki, sem lenda í þessum nýja flokki, lækkar um nær helming við breytinguna. Sem dæmi má taka að gjald fyrir staka ferð ökutækis í II. flokki verður 1.500 krónur en er nú 2.800 krónur og gjald fyrir hverja áskriftarferð verður 1.000 krónur í stað tæplega 1.900 króna nú. Hér er sem sagt miðað við gjald fyrir ökutæki sem eru 6-8 metrar að lengd. Á hinn bóginn er ljóst að gjald fyrir til dæmis marga húsbíla hækkar þegar farið verður að innheimta fyrir þá samkvæmt II. gjaldflokki. Hingað til hafa þeir farið um göngin á lægsta gjaldi þrátt fyrir að vera allt að 7,25 metrar að lengd. Lengdarmæling allra ökutækja, og innri samræming gjaldskrár, gera það hins vegar að verkum að þessi ökutæki færast nú í II. gjaldflokk.
- Spölur er í þann veginn að taka í notkun sjálfvirkan lengdarmælingarbúnað við gjaldskýli ganganna. Nýju lengdarmælarnir eru í raun forsenda þess að unnt sé að breyta skipulagi gjaldskrárinnar og innheimta veggjald í samræmi við heildarlengd ökutækja hjá þeim sem um göngin fara, með eða án eftirvagns.
- Hér eftir verður innheimt hóflegt gjald fyrir eftirvagna: 100 krónur fyrir hverja ferð ökutækis í I. gjaldflokki með eftirvagn, ef heildarlengd er innan við 8 metrar, en 300 krónur ef heildarlengd er yfir 8 metrar. Hingað til hafa eftirvagnar, sem ekki eru skráningarskyldir, fylgt ökutækjum í I. gjaldflokki gjaldfrjálst en nú verður breyting þar á til heildarsamræmingar gjaldskrár. Ökutæki í gjaldflokkum II og III færast sjálfkrafa upp um flokk eftir heildarlengd eykis.
Veggjald í Hvalfjarðargöngum lækkaði 1. mars 2007 sem svaraði til helmingslækkunar virðisaukaskatts og stjórn Spalar notaði tækifærið til að lækka veggjaldið enn meira. Veggjald flestra áskrifenda verður nú lækkað enn frekar, til dæmis lækkar gjald fyrir staka ferð áskrifanda, sem kaupir 100 ferðir fyrirfram í I. flokki, úr 253 í 240 krónur. Gjald fyrir staka ferð áskrifanda, sem kaupir 40 ferðir fyrirfram í I. flokki, lækkar úr 366 í 360 krónur.
Þegar saman eru teknar breytingar á gjaldskránni 1. mars og 7. maí 2007 lækkar veggjaldið um 10-13,3% að jafnaði í I. og III. gjaldflokki en um 50% hjá þeim sem lenda í nýja 6-8 metra flokknum (II. gjaldflokki).
Lækkun veggjaldsins svarar til þess að Spölur ehf. skerði tekjur sínar um 65 milljónir króna á ári, miðað við umferð í Hvalfjarðargöngum árið 2006.



