Hafnar eru framkvæmdir við að setja upp leysimælibúnað við gjaldskýli Spalar til mæla lengd bíla og eftirvagna með sjálfvirkum hætti.

Hafnar eru framkvæmdir við að setja upp leysimælibúnað við gjaldskýli Spalar til mæla lengd bíla og eftirvagna með sjálfvirkum hætti.
Gert er ráð fyrir að mælitæknin verði tekin í gagnið í maímánuði, um leið og ný gjaldskrá tekur gildi fyrir Hvalfjarðargöng. Helstu nýmæli gjaldskrárinnar verða nýr gjaldflokkur fyrir 6-8 metra bíla og veggjald lækkar þá að sjálfsögðu verulega hjá þeim sem færast niður um gjaldflokk.