Veggjaldið í Hvalfjarðargöngum lækkar núna um mánaðarmótin um það sem nemur helmingslækkun virðisaukaskatts og gott betur en það. Lægsta gjald áskrifanda í I. gjaldflokki verður 253 krónur frá og með 1. mars og gjald fyrir staka ferð í I. flokki verður 900 krónur.Ríkið sér af tekjum upp á um 70 milljónir króna á ári með helmingslækkun virðisaukaskatts á veggjöldum og Spölur skerðir tekjur félagsins um allt að 14 milljónir króna á ári með því að lækka veggjaldið meira en sem svarar til skattalækkunarinnar.
Nýja gjaldskráin, sem tekur gildi á fimmtudaginn kemur, lítur þannig út í heildina:
| Áskrift + afsláttur, | Hver ferð |
| ||
Stök ferð |
| 900 |
10 ferðir-afsláttarkort | 5.600 | 560 |
40 ferðir-áskrift | 14.640 | 366 |
100 ferðir-áskrift | 25.300 | 253 |
Spölur innheimtir veggjald fyrir staka ferð með 2.800 króna álagi, alls 3.700 krónur, hjá þeim sem aka um gjaldhlið Hvalfjarðarganga án þess að greiða veggjald, í samræmi ákvörðun stjórnar félagsins 9. desember 2005. | ||
| ||
Stök ferð |
| 2.800 |
40 ferðir-áskrift | 75.080 | 1.877 |
Spölur innheimtir veggjald fyrir staka ferð með 2.800 króna álagi, alls 5.600 krónur, hjá þeim sem aka um gjaldhlið Hvalfjarðarganga án þess að greiða veggjald, í samræmi ákvörðun stjórnar félagsins 9. desember 2005. | ||
| ||
Stök ferð |
| 3.600 |
40 ferðir-áskrift | 95.120 | 2.378 |
Spölur innheimtir veggjald fyrir staka ferð með 2.800 króna álagi, alls 6.400 krónur, hjá þeim sem aka um gjaldhlið Hvalfjarðarganga án þess að greiða veggjald, í samræmi ákvörðun stjórnar félagsins 9. desember 2005. | ||
| ||
Mótorhjól |
| 200 |
Spölur innheimtir veggjald fyrir staka ferð með 2.800 króna álagi, alls 3.000 krónur, hjá þeim sem aka um gjaldhlið Hvalfjarðarganga án þess að greiða veggjald, í samræmi ákvörðun stjórnar félagsins 9. desember 2005. | ||



