Starfsmenn GT Tækni og Ljósvirkjans vinna að því að setja upp nýjan búnað sem mælir hæð ökutækja og farms sunnan Hvalfjarðar áður ekið er inn í göngin. Þetta er samvinnuverkefni Spalar og Vegagerðarinnar.
Starfsmenn GT Tækni og Ljósvirkjans vinna að því að setja upp nýjan búnað sem mælir hæð ökutækja og farms sunnan Hvalfjarðar áður ekið er inn í göngin. Þetta er samvinnuverkefni Spalar og Vegagerðarinnar.Gert er ráð fyrir að búnaðurinn verði tekinn í gagnið núna í febrúar. Eftir það verða brotamenn gegn reglum um hámarkshæð að beita afar ríkulegri hugmyndaauðgi til að afsaka gerðir sínar, reyni þeir að fara inn í göngin að sunnan með ólöglega háan farm.
Sjálfur mælibúnaðurinn verður nálægt viktarplani sunnan Hvalfjarðargatnamótanna og mælir sjálfvirkt hæðina á öllum ökutækjum og farmi þeirra á lnorðureið. Ef hæðin fer yfir lögbundið hámark, 4,20 metra, er viðkomandi ökutæki ljósmyndað og myndin kemur samstundis fram á tölvuskjá í gjaldskýli. Jafnframt birtist aðvörun til viðkomandi bílstjóra á fjögurra fermetra ljósaskilti 300 metrum norðan við mælibúnaðinn (sjá meðfylgjandi ljósmynd).
Sá brotlegi fær því skýr skilaboð um ástand mála og kemur sér einungis í enn frekari vandræði með því að halda áfram för sinni í því skyni að aka norður göngin.
Icetronica ehf. er með umboð hérlendis fyrir mælingarbúnaðinn. Sama fyrirtæki útvegaði Speli nýtt og fullkomið eftirlitsmyndakerfi sem tekið var í notkun í göngunum í maí 2005. Síðan þá hafa starfsmenn í gjaldskýli getaðfylgst á tölvuskjám með öllu sem gerist í göngunum sjálfum og utan munna beggja vegna fjarðarins. Allar hreyfingar í sjónsviði myndavélanna eru teknar upp allan sólarhringinn, þ.e.a.s. ef enginn bíll er á ferð að næturlagi er ekkert tekið upp en um leið og bíll kemur fara upptökutæki sjálfkrafa í gang.



