Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2007 Ryksugan á fullu, étur alla . . .

Ryksugan á fullu, étur alla . . .

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

spolur_ryksugan_070207Spalarmenn efndu til nýárshreingerningar í Hvalfjarðargöngum í janúar, reyndar þeirri fyrstu sinnar tegundar frá því þau voru opnuð sumarið 1998. Ryk á vegöxlum (ræmum með fram akreinum) og í útskotum ganganna var sogað upp og flutt á brott.

Starfsmenn Holræsahreinsunar ehf. önnuðust verkið. Þeir prófuðu tól sín og tæki í göngunum fyrir jól og tóku svo til við að ryksuga eftir áramót. Afraksturinn var í tonnum talinn, þ.e. rykið sem fjarlægt var og flutt út til urðunar.

Rykmengun í göngunum var þarna býsna áberandi áður, einkum að vetrarlagi þegar margir fóru um á nagladekkjum á álagstímum. Eftir hreingerninguna er hins vegar lítið ryk í loftinu og það er breyting sem  bæði finnst og sést! Ráðgert er því að rygsuga göngin reglubundið í framtíðinni til að halda loftinu þar hreinu og tæru.