Í opinberri umræðu hefur því ítrekað verið varpað fram að tekjur Spalar komi að stórum hluta frá viðskiptavinum félagsins á Akranesi og Vesturlandi og í því sambandi er vísað til þess hve margir á þessu svæði aki reglulega um Hvalfjarðargöng. Ekki er samt allt sem sýnist um tengsl umferðar annars vegar og tekna af sömu umferð hins vegar.

Viðskiptavinir Spalar eru vissulega umtalsvert fleiri hlutfallslega á Akranesi og Vesturlandi en annars staðar á landinu, sem tæplega kemur neinum á óvart. Hlutfall viðskiptavina, sem notfæra sér áskriftar- og afsláttarkjör Spalar, er hins vegar verulega hærra á Akranesi og á Vesturlandi en annars staðar. Þar af leiðandi er hlutur þeirra í tekjumyndun Spalar minni en margur ætlar þegar horft er á umferðina eina. Til fróðleiks má upplýsa að skipting tekna Spalar er áætluð í grófum dráttum sem hér segir:
- Einstaklingar og fyrirtæki á Akranesi greiða veggjöld sem svara til liðlega 1/6 hluta af tekjum félagsins.
- Einstaklingar og fyrirtæki á Vesturlandi öllu greiða sem svarar til um þriðjungs tekna félagsins.
- Um helmingur af tekjum félagsins á rætur að rekja til einstaklinga og fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi.
- Viðskiptavinir í öðrum landshlutum og erlendir ferðamenn greiða veggjöld sem svara til um 1/6 hluta tekna félagsins.