Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2007 249 hraðakstursbrot í göngunum um síðustu helgi!

249 hraðakstursbrot í göngunum um síðustu helgi!

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Alls 249 ökumenn verða að gjalda ríkissjóði sekt vegna hraðaksturs í Hvalfjarðargöngum um síðustu helgi. Þeir sem brotlegir voru óku að jafnaði á 83,3 km hraða en hámarkshraðinn í göngunum er 70 km á klukkustund.

Alls 249 ökumenn verða að gjalda ríkissjóði sekt vegna hraðaksturs í Hvalfjarðargöngum um síðustu helgi. Þeir sem brotlegir voru óku að jafnaði á 83,3 km hraða en hámarkshraðinn í göngunum er 70 km á klukkustund.

Sextán ökumenn óku á yfir 90 km hraða og tveir á yfir hundraðið, annar þeirra mældist á 106 km hraða.

Lögregla mældi hraða til norðurs frá því kl.14 föstudaginn 2. febrúar til kl. 10 að morgni mánudags 5. febrúar. Mældur var ökuhraði 6.535 bíla og af þeim lentu sem sagt 249 í súpunni eða 3,8%.

 

  • Vert er að vekja sérstaka athygli vegfarenda á því að niðurstaða helgarinnar úr göngunum sýnir og sannar að vikmörk hraðamælinga hafa lækkað. Þannig hefðu margir í hópi brotlegra sloppið fyrir nokkrum mánuðum þrátt fyrir að hafa ekið aðeins umfram hámarkshraðann. Nú hafa stjórnvöld hins vegar mælt fyrir um að lögregla umberi aðeins lítið frávik frá hámarkshraða við umferðareftirlit. Þar af leiðandi verða menn einfaldlega að venja sig við að virða fyrirmæli um hámarkshraða þar sem þeir eru á ferð, alltaf og alls staðar.