Hvalfjarðargöng verða lokuð frá miðnætti til kl. 6 að morgni aðfararnótt miðvikudags 31. janúar og frá míðnætti til kl. 6 að morgni aðfararnótt fimmtudags 1. febrúar. Þessar næturstundir verða notaðar til að fjölga ljósum að sunnanverðu í göngunum og auka þannig lýsingu yfir akbrautum þar.



