Ölvaður ökumaður fór suður um Hvalfjarðargöng á ofsahraða síðastliðna nótt og áfram Vesturlandsveg þar til lögreglu tókst að stöðva för hans við Álfsnes. Manninum var um hríð veitt eftirför á 150 km hraða og dró þá sundur með bifreið hans og lögreglunnar en hitt. Hann reyndist of drukkinn til að við hann væri hægt að tala og var látinn sofa úr sér bak við rimla.

Glæpsamlegur akstur af þessu tagi er sem betur fer afar sjaldgæfur og ökumaðurinn á lögreglu að þakka að hann varð ekki öðrum vegfarendum að fjörtjóni með framferði sínu.
Ölvaður ökumaður fór suður um Hvalfjarðargöng á ofsahraða síðastliðna nótt og áfram Vesturlandsveg þar til lögreglu tókst að stöðva för hans við Álfsnes. Manninum var um hríð veitt eftirför á 150 km hraða og dró þá sundur með bifreið hans og lögreglunnar en hitt. Hann reyndist of drukkinn til að við hann væri hægt að tala og var látinn sofa úr sér bak við rimla.Glæpsamlegur akstur af þessu tagi er sem betur fer afar sjaldgæfur og ökumaðurinn á lögreglu að þakka að hann varð ekki öðrum vegfarendum að fjörtjóni með framferði sínu.
- Af og til mælast bílar á of mikill ferð í Hvalfjarðargöngum, oftast á bilinu 80-90 km hraða. Hámarkshraði þarna er 70 km á klst. Lögreglan starfrækir myndavélakerfi í göngunum og skráir umferðarhraðann. Fram kemur í yfirliti lögreglunnar að um 1.600 ökumenn hafi verið kærðir fyrir of hraðan akstur í göngunum á síðasta rekstrarári Spalar, frá 1. október 2005 til septemberloka 2006. Flest hraðakstursbrotin áttu sér stað í janúar og apríl 2006.