Umferð í Hvalfjarðargöngum um verslunarmannahelgina í ár var umtalsvert meiri en í fyrra. Umferðin um Fiskidagshelgina í ár var hins vegar talsvert minni en í fyrra.
Fyrstu helgar ágústmánaðar eru miklir annatímar í umferðinni á þjóðvegum landsins, þar á meðal í göngunum. Fyrst er það verslunarmannahelgin og síðan helgin sem við kennum við Fiskidaginn mikla á Dalvík. En fleira en Fiskidagurinn lokkar gesti úr öðrum héruðum til samkomuhalds á Norðurlandi á sama tíma, til dæmis knattspyrnumót yngri flokka á Sauðárkróki og Siglufirði og handverkshátíð að Hrafnagili í Eyjafirði.
Í fyrra vakti sérstaka athygli að fleiri bílar fóru um göngin um Fiskidagshelgina en um verslunarmannahelgina en í ár snerist þetta við og munurinn er yfir 9.000 bílar.
Umferðartölurnar eru sem hér segir (tölur frá 2007 í sviga):
- Verslunarmannahelgin, frá fimmtudegi til mánudags: 42.800 (37.400).
- Fiskidagshelgin, frá fimmtudegi til mánudags: 33.700 (40.000).
Þess má geta að árið 2006 fóru 36.100 bílar um göngin um Fiskidagshelgina þannig að umferðin í ár var líka meiri þá en nú.



