Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2008 Göngin tíu ára

Göngin tíu ára

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Spölur ehf., sem á og rekur Hvalfjarðargöng, veitti vegfarendum og viðskiptavinum sínum forskot á afmælissæluna strax 1. mars í ár með því að lækka veggjaldið í göngunum. Félagið minnist að öðru leyti tímamótanna fyrst og fremst með þvi að efna til hófs á Akranesi síðdegis og afhenda Kristjáni L. Möller samgönguráðherra þar skýrslu um niðurstöðu rannsókna og undirbúningsvinnu undanfarna mánuði vegna nýrra ganga undir Hvalfjörð. Stjórn Spalar telur að staðreyndir um aukna umferð í göngunum ár eftir ár kalli á að félagið sjálft, Vegagerðin og stjórnvöld setji sér það markmið að hefja framkvæmdir við ný Hvalfjarðargöng og tvöföldun akbrautar um Kjalarnes innan þriggja til fjögurra ára.

  • Þá má geta þess að út er að koma bók um sögu Hvalfjarðarganga eftir Atla Rúnar Halldórsson, þar sem einkum er fjallað um aðdraganda framkvæmdanna en einnig um framkvæmdatímabilið sjálft frá 1996-1998 og áhrif Hvalfjarðarganga í samfélaginu. Útgefandi bókarinnar er Áform á Akureyri og henni verður dreift í verslanir eftir helgina.

Davíð Oddsson forsætisráðherra opnar Hvalfjarðargöng 11. júlí 1998. Með honum eru frá vinstri: Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar, Halldór Blöndal samgönguráðherra, Páll Sigurjónsson, stjórnarformaður Fossvirkis (verktakans við göngin) og Sigríður Ó. Johnson, barnabarn Páls og gæslumaður skæra.