Umferð í Hvalfjarðargöngum dróst saman um 4,8% í júní 2008 miðað við sama tíma í fyrra. Þetta er þriðji mánuðurinn í röð þar sem bílum fækkar þar og þannig birtist glögglega efnahagsástandið í samfélaginu yfirleitt í umferðartölum í göngunum.
Athyglisvert er engu að síður að umferð í Hvalfjarðargöngum minnkaði minna í júnímánuði en umferð á flestum leiðum sem Vegagerðin fylgist með. Þannig var samdrátturinn á Hellisheiði yfir 10% í júní miðað við sama mánuð 2007 en innan við 5% í Hvalfjarðargöngum eins og fyrr segir.



