Starfsmenn fyrirtækisins Alvars ehf. og sænsks undirverktaka þess, Drillcon AB, luku í dag við þriðju kjarnaborholuna upp úr Hvalfjarðargöngum. Þeir hefjast handa við fjórðu holuna viku af mars og bora fram undir páska.Þriðja holan var boruð skáhallt til suðurs með 30º halla upp úr fyrsta útskoti norðan við dýpsta hluta ganganna. Borinn fór upp út klapparbotninum eftir 89 metra og hafði þá verið allan tímann í mjög þéttu og góðu bergi. Þykkt klappar ofan við göngin á þessum stað er um 48 metrar, sem er í samræmi við niðurstöður bylgjubrotsmælingar af sjó í aðdraganda hönnunar núverandi ganga.
Áformað er að bora fleiri rannsóknarholur upp úr göngunum fyrir páska Bormennirnir taka sér nú frí en mæta á ný til starfa þegar vika er liðin af marsmánuði.



