Veggjald í Hvalfjarðargöngum lækkar á laugardaginn kemur, 1. mars. Þetta kemur fram í tilkynningu sem stjórn Spalar sendi frá sér í dag. Ný gjaldskrá er birt hér neðst í fréttinni.
Veggjald fyrir staka ferð í Hvalfjarðargöngum lækkar úr 900 krónum í 800 krónur. Jafnframt lækkar veggjald í flestum áskriftarflokkum en mismikið. Þannig lækkar gjald í þremur flokkum um nálægt 4% en í þremur öðrum flokkum um meira en 20%.Lægsta veggjald áskrifenda eftir breytinguna verður 230 krónur fyrir venjulegan fjölskyldubíl.
Áætlað er að tekjur Spalar, sem á og rekur Hvalfjarðargöng, skerðist um 43 milljónir króna á ári vegna gjaldskrárbreytingarinnar.
Tilefni nýrrar gjaldskrár er væntanleg gildistaka tilskipunar Evrópusambandsins hér á landi varðandi hámarksafslátt vegna gjaldheimtu í veggöngum af ökutækjum sem eru 3,5 tonn eða meira og stunda samkeppnisrekstur. Ákvæði tilskipunarinnar ná til II., III. og IV. gjaldflokks Hvalfjarðarganga og ákvað stjórn Spalar að láta önnur ökutæki í sömu gjaldflokkum njóta líka lækkunarinnar. Áhrifa tilskipunarinnar gætir mismikið í nýrri gjaldskrá en allar breytingar eru til lækkunar og ákveðið var að lækka jafnframt gjald fyrir staka ferð og fyrir áskriftar- og afsláttarferðir í I. flokki, gjaldflokki fjölskyldubíla.
Veggjald og bensínverð
Veggjald í Hvalfjarðargöngum hefur lækkað um tugi prósenta frá upphafi, bæði að krónutölu og miðað við verðlag. Til gamans og fróðleiks má nefna eftirfarandi um veggjald og bensínverð:
- Stök ferð um göngin kostaði 1.000 krónur þegar þau voru opnuð í júlí 1998. Á sama tíma kostaði bensínlítrinn 75,40 krónur (verð með virðisaukaskatti og þjónustu á stöð).
- Stök ferð um göngin kostar 800 krónur frá og með 1. mars 2008. Bensínlítrinn kostar 143,80 krónur (miðast við 20. febrúar, verð með virðisaukaskatti og þjónustu á stöð).
Með öðrum orðum:
- Í júlí 1998 var veggjald fyrir staka ferð jafnvirði rúmlega 13 lítra af bensíni.
- Í marsbyrjun 2008 verður veggjaldið, miðað við óbreytt bensínverð, jafngildi 5,5 lítra af bensíni.
- Lægsta veggjald áskrifenda verður jafngildi 1,6 lítra af bensíni 1. mars 2008, miðað við bensínverðið 20. febrúar 2008.
Gjaldskrá Spalar fyrir Hvalfjarðargöng 1. mars 2008
| Áskrift og afsláttarkort kr. | Hver ferð | |
|
| ||
| Stök ferð | 800 | |
| 10 ferðir-afsláttarkort | 5.200 | 520 |
| 40 ferðir-áskrift | 13.800 | 345 |
| 100 ferðir-áskrift | 23.000 | 230 |
| Fyrir ökutæki í I. gjaldflokki eru greiddar 100 krónur til viðbótar fyrir hverja ferð með eftirvagn ef heildarlengd er innan við 8 metrar en 200 krónur til viðbótar fyrir hverja ferð ef heildarlengd er yfir 8 metrar.
Seldir eru sérstakir miðar (10 saman á 1.000 kr.) til þæginda fyrir þá sem aka með aftanívagna og nota afsláttarkort. | ||
|
II. gjaldflokkur
| ||
| Stök ferð | 1.100 | |
| 40 ferðir-áskrift | 38.400 | 960 |
| Ökutæki í II. gjaldflokki, með eftirvagn, færast upp í III. gjaldflokk ef heildarlengd er yfir 8 metrar en færast upp í IV. gjaldflokk ef heildarlengd er yfir 12 metrar. | ||
|
| ||
| Stök ferð | 2.000 | |
| 40 ferðir-áskrift | 69.200 | 1.730 |
| Ökutæki í III. gjaldflokki, með eftirvagn, færast upp í IV. gjaldflokk ef heildarlengd er yfir 12 metrar. | ||
|
| ||
| Stök ferð | 2.700 | |
| 40 ferðir | 94.000 | 2.350 |
| Spölur innheimtir veggjald fyrir staka ferð með 2.800 króna álagi, alls 5.500 krónur, hjá þeim sem aka um gjaldhlið Hvalfjarðarganga án þess að greiða veggjald. | ||
|
| ||
| Mótorhjól | 200 | |
| Spölur innheimtir veggjald fyrir staka ferð með 2.800 króna álagi, alls 3.000 krónur, hjá þeim sem aka um gjaldhlið Hvalfjarðarganga án þess að greiða veggjald. | ||



