Lögregla stóð að verki í vikunni mann sem ók á 125 km hraða í göngunum. Slík hegðun er sem betur fer orðin sjaldgæf í umferðinni þar, enda viðurlögin í samræmi við hættu sem svona fólk skapar. Viðkomandi má gera ráð fyrir 80.000 króna sekt, eins mánaðar ökuleyfissviptingu og fjórum refsistigum í ökuferilsskrá sína.
Lögreglan fylgdist með umferðinni norður Hvalfjarðargöng frá þriðjudegi til fimmtudags, 12.-14. febrúar. Alls fóru hjá 3.527 ökutæki og ökumenn 58 þeirra óku of greitt. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 87 km. Þar mældust fimm á yfir 90 km hraða, tveir á 100 km hraða eða meira og annar þeirra lét sér sem sagt ekki duga minna en að aka á 125 km hraða - sem er ekkert minna en glæpsamleg framkoma gagnvart öðrum vegfarendum.



