Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2008 Ársumferðin í Hvalfjarðargöngum í fyrsta sinn tvær milljónir bíla

Ársumferðin í Hvalfjarðargöngum í fyrsta sinn tvær milljónir bíla

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Alls fóru um 2.030.000 bílar um Hvalfjarðargöng á árinu 2007 eða 9,3% fleiri en árið 2006. Þetta er í fyrsta sinn sem ársumferðin nær tveimur milljónum bíla frá því göngin voru opnuð og hefur raunar tvöfaldast frá árinu 1999!

 

  • Árið 1999 fór liðlega ein milljón bíla um göngin, fyrsta heila árið sem þau voru opin, eða liðlega 2.800 bílar á sólarhring jafnaði.
  • Árið 2007 var heildarumferðin sem sagt liðlega tvær milljónir bíla eða yfir 5.500 bílar á sólarhring að jafnaði.
Athyglisvert er að umferðin jókst enn í nýliðnum desember eða um 3,4% miðað við jólamánuðinn 2006. Þetta gerðist á sama tíma og hvert aftakaveðrið á fætur öðru reið yfir landið með tilheyrandi samgönguvandræðum. Ætla má því að umferðaraukning í desember 2007 hefði orðið enn meiri ef tíðin hefði verið skapleg. Fróðlegt verður því að fylgjast með þróun mála næstu mánuði og misseri.
  • Veggjald í göngunum hefur lækkað svo tugum prósenta skiptir frá upphafi, bæði í krónum talið og miðað við verðlag í landinu. Nettótekjur Spalar af hverjum bíl hafa þannig rýrnað verulega. Viðskiptavinir njóta með öðrum orðum þess, sem aukin heildarumferð skilar félaginu, með því að greiða lægra veggjald en ella (sjá súlurit og línurit hér að neðan).
  • Lægsta veggjald fyrir fjölskyldubíl er nú 240 krónur fyrir ferðina.

 

Umferð um Hvalfjarðargöng 2007

 



hvalfjardargong_umferd_2_04012008