Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2008 Sveitarfélög á Vesturlandi vilja hefjast handa strax við tvöföldun vegs og ganga

Sveitarfélög á Vesturlandi vilja hefjast handa strax við tvöföldun vegs og ganga

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Sveitarstjórnir Skorradalshrepps, Hvalfjarðarsveitar, Borgarbyggðar og Akraneskaupstaðar þrýsta á stjórnvöld að hefjast handa strax við undirbúning að tvöföldun vegar um Kjalarnes og ganga undir Hvalfjörð. Þetta kemur fram í ályktun sem fulltrúar þeirra samþykktu á dögunum.

Ályktunin hljóðar þannig í heild sinni:

Hafist verði handa nú þegar við vegtengingu milli Kjalarness og Reykjavíkur. Fundurinn skorar á ríkisvaldið að hefja þegar framkvæmdir í framhaldi af samkomulagi Spalar og Vegagerðarinnar um tryggingu fjármagns til að hefja tvöföldun vegarins um Kjalarnes og og tvöföldun Hvalfjarðarganga. Álag á umrædda vegtengingu er langt umfram það sem gert hefur verið ráð fyrir, umferðartafir eru farnar að standa í vegi fyrir eðlilegu samkeppnisumhverfi auk gífurlegs hættuástands sem er viðvarandi vegna umferðarþunga. Íbúar nefndra sveitarfélaga ásamt starfsmönnum Norðuráls og Íslenska Járnblendfélagsins eru mjög háðir leiðinni um Hvalfjarðargöng, meira en flestir aðrir landsmenn. Gjaldtaka vegna gangnanna er sérstakur skattur á íbúa svæðisins og er krafa sveitarstjórnanna að njóta jafnræðis við aðra landsmenn með því að gjaldtakan verði aflögð. Þá tekur fundurinn undir kröfur aðalfundar SSV sem eru eftirfarandi: Vegtenging frá Sæbraut yfir á Kjalarnes, tvöföldun þjóðvegar frá Hvalfjarðargöngum að Bifröst í áföngum. Auknum umferðarþunga á vegum verði nú þegar mætt, á vissum köflum, með 2+1 vegi sem nýtist þegar framtíðarvegur 2+2 er byggður upp á leiðinni Reykjavík - Bifröst. Nú þegar verði hafinn undirbúningur að færslu þjóðvegar eitt við Borgarnes og ný veglína hefur verið sett í umhverfismat.